Friday, September 15, 2006

ÞRIÐJUDAGUR ÞANN 19.09.06 ÞÁ GERAST HLUTIRNIR

Þá fer ég til Sri, Maggy og Eva fara til Lanzarote og Una verður.............hmmmmmmmmm.....einu árinu eldri. Og Una fer út daginn eftir.

Semsagt dagsetningin er ákveðin, guði sé lof (eða einhverjum öðrum), og þið losnið við mig bráðum og getið farið að sakna mín. Það er miklu skemmtilegra en að fólk sé að reka á eftir mér að fara til útlanda.
Mér og Gunnari er farið að hlakka til að fara að koma okkur í vinnuna. Það er dálítið óvanalegt fyrir mig að vera í fríi. MJÖÖÖÖÖÖG óvenjulegt, vön að vinna mikið þar sem ég er í löggunni og vinn allann tíma sólahringsins og alltaf eiginlega bara.

Er kannski að fara til Sauðárkróks á morgun :) ef Marín og Jakobína ætla að fara. Jibbijei. Tína aðalbláber og borða þau með áfergju, mmmmmmmmmmm nammi namm. Mamma er þarna núna og á að tína extra extra mikið af berjum, fyrir "litlu sætu stelpuna hennar sem er að fara til útlanda" hi hi hi hi.........

Var í nýja bílnum hans Binna áðan.........váááááááá, hvílíkur bíll maður/kona. Shittur í helvíti, ég er til í að vera meðeigandi í þessum bíl. Má ég?

Er núna hjá Evu og Maggý, með Kollu og Lilju og er orðin 5 kg þyngri eftir að Eva skóflaði mat í mig. Eva góða og sæta. Og Maggý öfluga. Þær sitja sitthvoru megin við mig, hjálp!!!?? Eða nei, ég hef það ansi nice hérna :) Og já Guðrún þú ert líka æði :)

Talaði við Carinu í dag og hún er að fara í sumarbústað um helgina, nice. Hún var búin að labba 11670 skref kl 18 og var í góðum málum.......o my good. Thihihihihihihihih...............

Lov u all og á eftir að sakna ykkar allra...........samt mismikið. He he he he he he.......

P.s. seinni hluta sprengjunámskeiðsins var frestað. Meira um það seinna.

7 comments:

Anonymous said...

Jesús , Dagný! Ertu brjáluð, áttu að bera byssu þér um öxl þarna i Sir Lanka eða hvernig er þetta eiginlega, er mjög stressuð fyrir þína hönd, nei er bara fíflast, farðu varlega og reyndu að haldann friðinn þarna úti þar sem þú ert í friðargæslunni,knús.......

Anonymous said...

hæ hæ, er búin reyna að senda ykkur myndir, gekk til þín Dagný en sorry Carina ekki til þín. Veit ekki hvort þetta var of stórt, er kanski svo fullt hjá þér boxið að þú getir ekki tekið vid. Well well, Dagný kanski getur prófað að forwarda á þig.
kvedðja Lóa

Anonymous said...

Þú ert nú alveg meiriháttar. Ein af þessum manneskjum sem ekki er hægt annað en dást að. Ef fleiri væru eins og þú væri nú ekki vandræðin í heiminum. Þú ert mannbætandi og eykur trú manns á mannskepnuna. Þá er ég ekki bara að meina þennan kjark þinn að fara í friðargæsluna, heldur öll þín daglega framganga.
Farðu nú vel með þig í Sri og knús.
Birna aðstoðarruslana.
P.s Sigrún sendir líka knús.

Fam/Fjölsk Borge said...

-Tóta mín ég skal lofa að fara varlega......lofa :)
-takk Kolla mín. Ég þarf að læra að gera þetta líka....úfffffffffff.
-Takk lóa, ætla að skoða myndirnar núna og kem þeim áfram til Carinu.
-TAKK takk Birna mín og Sigrún. Þið eruð líka algjörar hetjur.....heia Ruslana

Anonymous said...

Ef ég þekkti þig ekki betur þá myndi ég segja að þetta væri frumlegasta bónorð sem ég hef séð: Var í nýja bílnum hans Binna áðan.........váááááááá, hvílíkur bíll maður/kona. Shittur í helvíti, ég er til í að vera meðeigandi í þessum bíl. Má ég?

Anonymous said...

Lykke til pá tirsdag......Gruer meg jeg :(
Sri watch out!

Fam/Fjölsk Borge said...

-GUMMI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Fífl :) þykir samt vænt um þig kallinn.
-Carina já Sri skal sá "watch out" for meg. Gleder meg litt da ;)