Monday, September 04, 2006

Mánudagur.............til mæðu?

Jæja jæja.......
Þetta er nú meiri spretturinn. Fór að æfa í morgun hjá honum Orra og Palli vinur minn kom með, rosa gaman. Það er bara ótrúlega gott að vera hjá einkaþjálfara, maður þarf ekkert að hugsa sjálfur, bara telja, 1, 2, 3, 4, .........
Dauðþreytt eftir púlið, fór í klippingu hjá Lilju, verð að vera nýklippt í Sri, en hélt varla haus hjá henni þar sem ég var dálítið þreytt. Ó já fór líka um morguninn á lögreglustöðina og náði í "nauðsynlega" fylgihluti til að hafa með til Útlanda þ.e.a.s. leathermanninn og vasaljósið litla. OOOOOOOOOOOOOOg fór að endurnýja ökuskírteinið mitt. Núna hlægja örugglega nokkrir sem að hafa séð myndina í gamla skírteininu mínu :)
Keypti mér sandala í 66°norður og einhverja mittistösku sem að ég keypti eiginlega bara að því að hún svo kúl á mér :) minnkaði rassinn til muna. Hi hi hi. OOOOOOOOOOOOg svo keypti ég forlátan bakpoka hjá Everest sem að tekur 90 lítra af "fötum". Dálítið ljótur eiginlega en virkar ótrúlega praktískur. Núna verð ég nefninlega að vera "praktísk" óóóóóógeðslega leiðinlegt.
Klukkan 16 fór ég svo í nokkrar sprautur í viðbót, bólusetningar, og ég held bara að ég sé andsetinn af rotnunarefnum eftir allt þetta eitur. Helgi, sem er víst gúrú í þessu "geimi", sagði að ég mætti ekki borða ís í Sri og ætti að bera á mig mýflugnafæluógeð kl 17 á daginn????!!!! ÓK, vakna þær þá..................... nei djók.
Núna ætlar hún mamma sæta að koma í heimsókn og við ætlum að "kúsa" okkur. Hún spurði hvort að ég ætti grjón!!!!!!!!!???????? Shit ég er að fara að éta grjón í 6-12 mánuði stanslaust og hún ætlar að elda grjón...............dísus hvað hún er sætust!!
Ég hef eiginlega frá fullt öðru að segja en ég verð aðeins að taka þessu rólega. Fingurnir mínir þola ekki alla þessa hreyfingu. Er næstum því á lausu sjáiði til :)

Lov og kús.

6 comments:

Anonymous said...

nohh ... bara dugleg að að blogga stelpan :D
Verður gaman að fylgjast með ævintýrum þínum :)
*knúz&kram*

Anonymous said...

Frábært hjá þér skvísa, gott að geta fylgst með þér þarna úti.

Anonymous said...

Hei vakreste jenta i hele verden :)

Så fin siden din ble. Blir fint å lese om deg hver dag nå som jeg ikke får pratet med deg i telefonen hver dag :( Snufs.....
Husk at jeg elsker deg over alt på jord.

Alltid din C

Anonymous said...

hehe.. fingurnir þola ekki þetta púl... múahha

Anonymous said...

Hæ skvísa! Eva sagði mér í gær frá þessum svakalegu fréttum að þú værir að fara út! Þú ert nú meira hörkutólið :) Rosa góða ferð og gangi þér ofsa ofsa vel...ég fylgist með þér hérna á síðunni...

Knús frá Beggu (Evu og Maggy Beggu:)

P.s. hæ til þín Carina og takk fyrir síðast...svo sætt kommentið þitt hér að ofan...hafðu það gott..knús

Anonymous said...

Hæ Begga sæta:)
Takk fyrit sidast. Thad var rosa gaman.
Vona ad thu lidur vel :)

Knus knus C

Dagny: tenker på deg