Monday, May 21, 2007

.....AÐALBJÖRN NOT HERE ANYMORE......

Ég, Aðalbjörn, Jens og Helga í saknaðarkasti yfir því að Aðalbjörn sé að fara

Aðalbjörn er farinn
Já hann er farinn og ég/við söknum hans svaka mikið! Hann er búinn að vera hérna síðan ég kom til Sri Lanka og við höfum gert ansi mikið saman...eins og þið hafið séð á myndunum seinustu mánuði. OOOOOOO, ansans. En maður verður bara að sætta sig við þetta. Honum líður allaveganna ÖRUGGLEGA vel núna með Siggu sinni. Og svo er hann ÖRUGGLEGA líka búinn að hitta Sæunni. OOOOO ég öfunda hann útaf þvi! En kannski ég, Aðalbjörn og Sæunn eigum pottþétt eftir að hittast á kaffihúsi núna í júní.

Aðalbjörn skrifaði smá grein um Helgu, Maríu og mig rétt áður en hann fór fyrir Kríurnar. Ég læt að sjálfsögðu linkinn fylgja með. www.logreglukonur.is
Endilega lesa.

Annars er, eins og alltaf, rosalega mikið að gera. Það var alveg æðislegt á ´hittingnum´í Habarana. Það var frábært að sjá alla skemmta sér svona vel saman. Við dönsuðum eins og fávitar í 3 tíma við Abba, Grease og fullt fullt af local músík. Mér var kennt að dansa eins og ´local´kona og ´local´maður. Það var einn sem að kom til mín þegar allt var búið og sagði við mig (p.s. hann er pínu karlremba) ’ I wanted to dance with you but i saw you dance and you looked really strong. I saw that you were to strong for me because MEN are suppose to LEAD here in Sri Lanka’………thi hi hi hi….he should only know!!!!????

Núna er ég að skipuleggja fundi til hægri og vinstri fyrir HOM og það er bara gaman sjáið þið til. Ég er að læra fullt og er á mjög mikilvægum fundum. Spennandi.

Það eru bara ca 16 dagar þangað til ég kem heim til Íslands og ég hlakka rosa rosalega til. Vááááá, hvað það verður gaman að sjá ykkur öll aftur.
Og hérna erum við í brjálæðiskasti yfir því að Aðalbjörn var að fara
Carina kemur 13 júní til mín og váááá það verður bara betra betra. Og svo ætla ég að hitta litlu strákan tvo og co!! Æði. Bara að minna ykkur aftur á þá
Ég ætla líka að senda Mæju í RVK baráttukveðjur og hinni Mæju til hamingju kveðjur. Jei og jei.

Líka smá kveðja til systkinna minna Björgvin, Sævar, Selmu, Marín, Hjörvars og Atla. Ég elska ykkur öll og er ótrúlega glöð og ánægð yfir því að vera systir ykkar.
Og að sjálfsögðu fær mamma líka kossa og knús frá mér. Love u 2. (p.s. Selma...engar leiðréttingar takk)

Love til allra

20 comments:

Anonymous said...

Ég þarf að fara að senda þér mynd af mér, þú mannst ekki eftir mér eða hvað.......G.Fylkis

Anonymous said...

jedúdda.. hvað ég hlakka til að sjá þig sæta...

og pant að fá kveðju í næsta bloggi!

Anonymous said...

22 dager igjen :) Gleder meg sinnsykt. Tiden går veldig sakte bare.Arg!
Takk for nydelige smsèr hele tiden Dagny min. Du er best :)

Anonymous said...

Gaman af þér snúlla.

Gangi þér vel með allt!!!!!

Toggan.

Anonymous said...

Kvitt kvitt kvitt, út með gæruna, það er lykt af henni.
Kv. Jens

Anonymous said...

Hæ, hæ,

Frekar asnalegt að kvitta þegar þú ert hérna í sama húsi, en fu## it!

Kvitt, kvitt, Helga

Anonymous said...

Hæ Dagný mín. Var að reyna að hringja í þig en ekkert gekk. Viltu vera svo væn að slá á mig þegar þú getur.
LoveU Hanna ps. ég fer út á fimmtudaginn

Anonymous said...

Ég sé að þú ert búin að kenna Jens alla Stellubrandarana okkar.
Þú ert orðin svo flink að ég er að verða óþörf. ÞÚ ert meira segja farin að hlakka til. Til hamingju. Ég elska þig. Selma.

Anonymous said...

gvööð hvar var ÉG?! bara komin langur pistill og fullt af kommentum :)
Vantaði þig alveg með í humar-grillið-og-plan-hittinginn á laugardag :D Styttist í þetta allt saman :) *knús&kram*

Anonymous said...

Hæ sæta. Kíktu á bloggið okkar, gettu hverjar eignuðust kríli í gær:)

Anonymous said...

hæ Dagny mín takk fyrir kveðjuna sæta :) hlakka til að fá þig heim :) styttist í þú dúddírú

Anonymous said...

kvitt kvitt

Fam/Fjölsk Borge said...

Gummi-
HVER ERT ÞÚ????? THI HI HI....
Eva M-
Að sjálfsögðu skal ég senda þér heilsu í næsta bloggi. Ég er líka ALLTAF að hlusta á nýju útgáfuna ykkar!!! Jí....æfi og dansa við þetta á fullu. Æði.
Carina-
Ja jenta mi...Jeg teller ned, gleder meg sinnsykt til á se deg. I like máte med meldingene. Deilig.
Togga-
Þú ert nú frekar skemmtileg líka Þorgerður....thi hi hi...Ekkert hræðilega leiðinleg.
Jens-
Ég er búin að kasta gærunni út en lyktin loðir við mig eins og gamall notaður túrtappi.....Hvað á ég að gera í málinu?
Helga-
Röfl og röfl.....auðvitað áttu að kvitta þó að þú sért í sama húsi.....
Hanna-
Skemmtu þér vel í danaríki...kús.
Raggý og Inga-
Já Raggý svona er þetta....þú bara kíkir ALDREI á bloggið hjá mér...NOT. Búin að kíkja, Hanna, Sara, Camilla og nýji herra Smart ´til hamingju´!
Selma-
Já hann Jens er góður í Stellubröndurum og Shreck bröndurum...ansi sterkur þar.
Mæja B-
Já ég kem bráðum og þá er það kaffi með þér góða.....kaffi já kaffi og kaffi...he he he. Kús.
Steinunn-
Og Kvitt kvitt tilbaka. Vona að þér líði betur.

Anonymous said...

På tide å oppdatere bloggen Dagny min!

Anonymous said...

jæja .. hvað er að gerast meira spennandi í heita landinu ??? :D Rétt vika í heimkomu á klakkan .. veivei ;)

Anonymous said...

Hæ.
Hvernig væri að láta heyra eitthvað frá sér.
Selma.

Anonymous said...

Blogga Dagný

Anonymous said...

Set bara inn nokkur komment.....

Anonymous said...

Verð að hafa eitthvað að lesa....................................................................................................................................................................................

Anonymous said...

http://s3.frontur.com/img/10272/20070529122309_12.jpg
Tók þessa bara fyrir þig.
Hlakka til að hitta þig,