Wednesday, August 29, 2007

NÝR BÍLL (FRÚ PIMP) OG CARINA....NORGE.

Babe og BMW

HALLÓ SÆTU ;)

BMW með kúl ökumanni.

Núna er ég semsagt að fara til Noregs á morgun og ég hlakka hvílíkt til. Vildi óska að ég gæti tekið frú Pimp með svo að ég gæti krúsað í Fredrikstad með Carinu við hliðina á mér. En jæja shti au.


BMW stýri og hnén á mér.

Ég er að sjálfsögðu byrjuð að vinna í löggunni í Rvk og það er rosa gaman en ROSALEGA MIKIÐ álag núna. Þetta er bara ekki orðið fyndið lengur. Og svo eru bara allir að hætta. Hmmmmm, tala um það meira seinna.

Ég er semsagt að fara til Carinu á morgun og ég hlakka svo mikið til að ég er að drepast. Þetta verður æði. Sævar ætlar að passa íbúðina, Eva gætir Frú Pimp og Gummi í Bozníu ætlar að uppfæra bloggið mitt þar sem að hann hefur ekkert betra að gera ;) thi hi hi.

BMW topplúgukíkjari....sem að heitir Maggý babe

Fór með trúlofunarhringinn í viðgerð í vikunni og það var ekki ódýrt. Djö. Steinarnir vilja bara ekki vera í hringnum. Ég skil þetta ekki. Carina á ekki við þetta vandamál að stríða. Annars var Carina búin að finna út hvers vegna þetta var. Ég er alltaf að lyfta lóðum og þá beygjist hringurinn. Hljómaði allaveganna trúlegt. Og ég lyfti lóðum.....ekki Carina......held ég.....

Nóg um það, Hérna eru myndir af stoltinu mínu þessa dagana. BMW, 3 línan, 1800 vél, sjálfskiptur MEÐ topplúgu. Carina....Frú Pimp bíður eftir þér.

BMW de lux.

Og ég og Eva sáum Astrópíu um daginn. Mjög skemmtileg og öðruvísi. Mæli með henni....þó það sé bara til að horfa á vöðvana á Ragnhildi. Jí hvað hún er flott.

Hún er bara babe hún Ragnhildur. Næstum því eins og rennilegur, stæltur BMW ;) hi hi.

Lov jú oll.

Þetta er Guðrún vinkona mín.............og já hún er stundum kölluð Rúna............ansans.....og litla gæludýrið hennar og dóttur hennar sem að heitir Birta. Dótturin heitir Birta ekki hamsturinn. Thi hi ömurlega skrifað.

Wednesday, August 22, 2007

....Komin til Íslands.....Allt að gerast....

Ísafjörður, Gay Pride og ÓMenningarnótt

Ég og Eva á Ísafirði með lið frá Mýraboltanum í Bakinu ;)
Ég, Marín og Eva ókum saman til Ísafjarðar og fórum í brúðkaup. Það voru ekkert rosa margir í bænum en Mýraboltinn bætti nú úr því. Mig langar sko að vera með næsta ár. Fullt af drullu, konur í þröngum flottum stretch galla...bleikum.... og allir hreyfast rosa hægt, berjast, detta, faðmast og allt. Lesbíur sameinumst í Mýrabolta, við myndum RÚLLA þessu upp. ÓJÁ GIRL POWER.

Ég að ´pósa´á leið frá Ísó
Ég og Eva á mótórhjólinu í kjólum á Gay pride.

Og svo kom Gay Pride næstu helgi. Ó mæ good. Alltaf jafn gaman þar. Ég elska að vera íslensk og sérstaklega á þessum degi. Það er æðislegt að vera niður í bæ og upplifa þetta samfélag. Gamalt fólk, útlendingar, unglingar, börn, samkynhneigðir, gagnkynhneigðir, tvíkynhneigðir, fatlaðir, ófatlaðir, klikkað fólk, venjulegt fólk, óvenjulegt fólk, skrýtið fólk...allir saman, brosandi, hlægjandi, í góðu skapi að njóta dagsins. Æi...ég get bara ekki útskýrt hversu stolt ég er. Ég er svo stolt yfir því að vera alkahólisti, lesbía og svo hefur þjóðernissinninn í ´mér aukist um 200% seinustu ár útaf þessum degi. Áður ók ég niður Laugarveginn sem stolt samkynhneigð kona.....núna ek ég niður Laugaveginn sem stolt íslensk kona, partur af þjóðfélaginu. Æði. Ég elska ykkur ÖLL sem að voruð þarna niðurfrá að taka þátt í þessu með okkur.

TAKK ÍSLAND

Maja, Hildur, stráksi, Lilja og Una á bátnum að horfa á flugelda

Ómenninganótt kom og fór frekar friðlega. Við fórum á Q bar og ég var að brjálast þar sem að ég fílaði ekki músíkina mjög vel. Alveg ágæt til að hlusta á en ekki til að dansa. Common Q bar....er þetta gay bar með gay músík eða á þetta að vera ´hipp´bar. Please bring on the GAY MUSIC. MADONNA where are U?

Hinn yndislegi bróðir minn með ...........hmmm.................Enok............hmmmmmmmmm.........Ísar.......hmmmmm

Já ég viðurkenni að ég þekki þá ekki alveg í sundur. Ef að þeir væru saman ók....en ekki saman...ekki alveg að ná þessu. Þeir eru bara yndislegastir af öllum og eiga æðislega foreldra. Birgitta og Hjörvar eiga sko hrós skilið fyrir uppeldi þeirra á strákunum. Þið eruð æði.

Annars er ég búin að kaupa bíl....BMW...já í alvöru. Ég ætla að taka mynd af honum og láta hana hérna bráðlega. Núna er ég Nike hóra og á pimp bíl. Shit Carina hvað er að gerast??? Drífðu þig hingað kona.

Og ég er að fara til Carinu 30 ágúst og verð í 13 daga. Jibbíjei og hei.

Helga og Jens eru komin til landsins...velkomin bæði tvö.

Love.

Wednesday, August 01, 2007

.......KLIKK HELGA OG DAGNÝ KLIKK.......

ER AÐ KOMA Á MORGUN
Einu sinni voru tvær eðlilegar ´stelpur´sem að hétu Dagný og Helga. Svo fóru þær til Sri Lanka, borðuðu Indverskan mat og bang....allt fór til andskotans.
Við byrjuðum voða eðlilegar, brostum meira að segja og töluðum ekkert of hátt né hneggjandi. En svo fórum við að taka sjálsmyndir...how clever is that.
Ók við vorum úti að borða og datt alltíeinu í hug að taka nokkur svipbrigði. Við erum rosalega góðar í að leika ég og Helga. Þetta átti að vera fyrsti sexý svipurinn. Ég held að við Helga ættum bara að vera ánægðar að vera búnar að ná í svona flotta maka eins og Carina og Gestur eru. Hjúkk.
Leiðar....Ji hvað ég er krumpuð... he he he...og hvað er þetta með að taka mynd upp í nefið á sér......
Hissa, ó mæ goooood, þarna eru reykingahrukkurnar hennar mömmu að koma í ljós á mér. Helga er bara náttúrulega lömuð í andlitinu.
Reiðar....ég held ekki að margir yrðu skelkaðir. Helga hreyfir augnbrýrnar.
Hellúúúú......spúkí....how are júúú dúing?
Sexý.....eða...notuðum aukahluti núna, þ.e.a.s. hendurnar. Hefði kannski tekist ef að við hefðum verið með aðeins nettari hendur. Þetta gæti verið reiða myndin í staðin fyrir sexý.
Hann er nú ekki alveg góður hann Steinar. Og sjáiði tunguna maður.....kona.....shit....aubara.... Ég varð aðeins að veita honum smá athygli þar sem að hann sat hinum megin við mig á veitingastaðnum. Hann var orðin hálf örvæntingafullur á svipinn. Thi hi hi.
Sjáumst hvað úr hverju.
Ætla að keyra með Mömmu og Marín til Ísafjarðar á föstudaginn kl 11....það er að segja ekki á morgun heldur hinn.....skrikkkkkkk.