Wednesday, August 22, 2007

....Komin til Íslands.....Allt að gerast....

Ísafjörður, Gay Pride og ÓMenningarnótt

Ég og Eva á Ísafirði með lið frá Mýraboltanum í Bakinu ;)
Ég, Marín og Eva ókum saman til Ísafjarðar og fórum í brúðkaup. Það voru ekkert rosa margir í bænum en Mýraboltinn bætti nú úr því. Mig langar sko að vera með næsta ár. Fullt af drullu, konur í þröngum flottum stretch galla...bleikum.... og allir hreyfast rosa hægt, berjast, detta, faðmast og allt. Lesbíur sameinumst í Mýrabolta, við myndum RÚLLA þessu upp. ÓJÁ GIRL POWER.

Ég að ´pósa´á leið frá Ísó
Ég og Eva á mótórhjólinu í kjólum á Gay pride.

Og svo kom Gay Pride næstu helgi. Ó mæ good. Alltaf jafn gaman þar. Ég elska að vera íslensk og sérstaklega á þessum degi. Það er æðislegt að vera niður í bæ og upplifa þetta samfélag. Gamalt fólk, útlendingar, unglingar, börn, samkynhneigðir, gagnkynhneigðir, tvíkynhneigðir, fatlaðir, ófatlaðir, klikkað fólk, venjulegt fólk, óvenjulegt fólk, skrýtið fólk...allir saman, brosandi, hlægjandi, í góðu skapi að njóta dagsins. Æi...ég get bara ekki útskýrt hversu stolt ég er. Ég er svo stolt yfir því að vera alkahólisti, lesbía og svo hefur þjóðernissinninn í ´mér aukist um 200% seinustu ár útaf þessum degi. Áður ók ég niður Laugarveginn sem stolt samkynhneigð kona.....núna ek ég niður Laugaveginn sem stolt íslensk kona, partur af þjóðfélaginu. Æði. Ég elska ykkur ÖLL sem að voruð þarna niðurfrá að taka þátt í þessu með okkur.

TAKK ÍSLAND

Maja, Hildur, stráksi, Lilja og Una á bátnum að horfa á flugelda

Ómenninganótt kom og fór frekar friðlega. Við fórum á Q bar og ég var að brjálast þar sem að ég fílaði ekki músíkina mjög vel. Alveg ágæt til að hlusta á en ekki til að dansa. Common Q bar....er þetta gay bar með gay músík eða á þetta að vera ´hipp´bar. Please bring on the GAY MUSIC. MADONNA where are U?

Hinn yndislegi bróðir minn með ...........hmmm.................Enok............hmmmmmmmmm.........Ísar.......hmmmmm

Já ég viðurkenni að ég þekki þá ekki alveg í sundur. Ef að þeir væru saman ók....en ekki saman...ekki alveg að ná þessu. Þeir eru bara yndislegastir af öllum og eiga æðislega foreldra. Birgitta og Hjörvar eiga sko hrós skilið fyrir uppeldi þeirra á strákunum. Þið eruð æði.

Annars er ég búin að kaupa bíl....BMW...já í alvöru. Ég ætla að taka mynd af honum og láta hana hérna bráðlega. Núna er ég Nike hóra og á pimp bíl. Shit Carina hvað er að gerast??? Drífðu þig hingað kona.

Og ég er að fara til Carinu 30 ágúst og verð í 13 daga. Jibbíjei og hei.

Helga og Jens eru komin til landsins...velkomin bæði tvö.

Love.

8 comments:

Anonymous said...

Heyr, heyr!!!!
Gaman að sjá að þú ert farin að blogga aftur. Langar til að hitta þig við tækifæri í kaffi og knús:)

Love Hanna

Anonymous said...

Velkomin aftur í blogg-heima & gaman að hitta þig í gær ;)

Anonymous said...

hæ sæta mín :)gaman að fá blogg frá þér loksins haha..og hvað þá eina mynd af skvísunni með :)það er svo gott að vera búin að fá þig aftur heim á klakann!! komin timi á gott spjall :)knuss..

Anonymous said...

Úlala þið Eva voruð aðalpæjurnar í göngunni. Er Binni að hafa einhver áhrif á þig í bílakaupum???????

Anonymous said...

Hæ sæta!

Hlökkum til að sjá þig á sunnudaginn gella :)

Kv. Helga og.... Gestur :)

Anonymous said...

Bilen må få kallenavnet P.I.M.P.! Tror det vil kle den :)

Og du kler meg ;) ;) ;)

Anonymous said...

Maður er bara alveg gleymdur. Ekki vildirðu láta sjá þig á hjólinu mínu, ekki var minnst á mig og allt. Grátkveðja frá Sarajevo í brjálaðri vinnu. G.Fylkis P.s. kysstu hvalaEvu frá mér vegna bresku lögreglukonunnar og hennar mans.

Anonymous said...

Hvala Eva? þetta hljómaði illa Gummi!!! Elsku Dagný og Carina og Eva Takk fyrir mig. Brúðkaupsdagurinn var FRÁBÆR... hann hefði náttúrulega aldrei orðið eins frábær eins og með þessari frábæru tónlist. Elsku Carina, takk takk takk fyrir fallega kortið frá þér. Við fengum það sent til Danmerkur. Hlakka voða mikið til að hitta ykkur á ný. Þá verð ég með lítið beibí;) Að lokum vil ég biðja ykkur að senda kveðju fyrir mig til Snæfríðar, Kolfinns og barna... Ég veit ekki hvernig ég get náð sambandi við þau. Ég var að spá í að fara næsta sumar að heimsækja þau með eiginmanninn og litla barnið;) Hlakka til. Love you kv Sunneva frænka.