Wednesday, November 14, 2007
PÁSA Í EINHVERN TÍMA ;)
Tuesday, October 30, 2007
ÓK ÓK ÓK........shit hvað ég er löt.......eða??
Love you all.
Thursday, September 20, 2007
SKAMM SKAMM FRÁ C, R OG G
Therese, Marianne og Carina...þær eru eins og límdar saman þessa dagana. Hér með vil ég styðja Maríönnu í ölllum hennar ákvörðunum í sambandi við Lottu. Heia M.
Ég og Helga (var með mér á Sri Lanka) erum kúl í ´óeirðabúning´
Ég fór á ´óreiðaæfingu´.......ónei óeirðaæfingu á mánudaginn og þriðjudaginn. Þetta var alveg ágætt. Gaman að vera með vaktinni í smá félagsskapsbindingu.... Spilaði ´Buzz´um kvöldið og það var rosa gaman. Ég leit út eins og gamall kartöflupoki í þessum galla. En jæja, maður getur víst ekki alltaf verið flott....au au æl æl.
E-vaktin í galla............úúúú........kúl
E-vaktin er auðvitað bara best og við þolum engin mótmæli þar takk. Við skemmtum okkur þrælvel, ég þurfti að deila klósetti með tveimur strákum og það gekk bara ágætlega svei mér þá. Þeir eru víst ekki alslæmir þessir strákar. Thi hi hi. Takk fyrir ferðina E-vakt.
..Raggý og Inga að skammast í mér útaf blogginu mínu....ég þarf mynd af Gumma F. hérna líka. Senda mér eina góða mynd Gummi ;)..
Semsagt ég er búin að fá skammir frá Carinu, Gumma F og Raggý um að skrifa smá í bloggið. Ég skal reyna að standa mig betur hér eftir.
Love jú all.
Wednesday, August 29, 2007
NÝR BÍLL (FRÚ PIMP) OG CARINA....NORGE.
BMW með kúl ökumanni.
Núna er ég semsagt að fara til Noregs á morgun og ég hlakka hvílíkt til. Vildi óska að ég gæti tekið frú Pimp með svo að ég gæti krúsað í Fredrikstad með Carinu við hliðina á mér. En jæja shti au.
BMW stýri og hnén á mér.
Ég er að sjálfsögðu byrjuð að vinna í löggunni í Rvk og það er rosa gaman en ROSALEGA MIKIÐ álag núna. Þetta er bara ekki orðið fyndið lengur. Og svo eru bara allir að hætta. Hmmmmm, tala um það meira seinna.
BMW topplúgukíkjari....sem að heitir Maggý babe
BMW de lux.
Hún er bara babe hún Ragnhildur. Næstum því eins og rennilegur, stæltur BMW ;) hi hi.
Þetta er Guðrún vinkona mín.............og já hún er stundum kölluð Rúna............ansans.....og litla gæludýrið hennar og dóttur hennar sem að heitir Birta. Dótturin heitir Birta ekki hamsturinn. Thi hi ömurlega skrifað.
Wednesday, August 22, 2007
....Komin til Íslands.....Allt að gerast....
Ég að ´pósa´á leið frá Ísó
Ég og Eva á mótórhjólinu í kjólum á Gay pride.
Og svo kom Gay Pride næstu helgi. Ó mæ good. Alltaf jafn gaman þar. Ég elska að vera íslensk og sérstaklega á þessum degi. Það er æðislegt að vera niður í bæ og upplifa þetta samfélag. Gamalt fólk, útlendingar, unglingar, börn, samkynhneigðir, gagnkynhneigðir, tvíkynhneigðir, fatlaðir, ófatlaðir, klikkað fólk, venjulegt fólk, óvenjulegt fólk, skrýtið fólk...allir saman, brosandi, hlægjandi, í góðu skapi að njóta dagsins. Æi...ég get bara ekki útskýrt hversu stolt ég er. Ég er svo stolt yfir því að vera alkahólisti, lesbía og svo hefur þjóðernissinninn í ´mér aukist um 200% seinustu ár útaf þessum degi. Áður ók ég niður Laugarveginn sem stolt samkynhneigð kona.....núna ek ég niður Laugaveginn sem stolt íslensk kona, partur af þjóðfélaginu. Æði. Ég elska ykkur ÖLL sem að voruð þarna niðurfrá að taka þátt í þessu með okkur.
TAKK ÍSLAND
Maja, Hildur, stráksi, Lilja og Una á bátnum að horfa á flugelda
Ómenninganótt kom og fór frekar friðlega. Við fórum á Q bar og ég var að brjálast þar sem að ég fílaði ekki músíkina mjög vel. Alveg ágæt til að hlusta á en ekki til að dansa. Common Q bar....er þetta gay bar með gay músík eða á þetta að vera ´hipp´bar. Please bring on the GAY MUSIC. MADONNA where are U?
Hinn yndislegi bróðir minn með ...........hmmm.................Enok............hmmmmmmmmm.........Ísar.......hmmmmmJá ég viðurkenni að ég þekki þá ekki alveg í sundur. Ef að þeir væru saman ók....en ekki saman...ekki alveg að ná þessu. Þeir eru bara yndislegastir af öllum og eiga æðislega foreldra. Birgitta og Hjörvar eiga sko hrós skilið fyrir uppeldi þeirra á strákunum. Þið eruð æði.
Annars er ég búin að kaupa bíl....BMW...já í alvöru. Ég ætla að taka mynd af honum og láta hana hérna bráðlega. Núna er ég Nike hóra og á pimp bíl. Shit Carina hvað er að gerast??? Drífðu þig hingað kona.
Og ég er að fara til Carinu 30 ágúst og verð í 13 daga. Jibbíjei og hei.
Helga og Jens eru komin til landsins...velkomin bæði tvö.
Love.
Wednesday, August 01, 2007
.......KLIKK HELGA OG DAGNÝ KLIKK.......
Leiðar....Ji hvað ég er krumpuð... he he he...og hvað er þetta með að taka mynd upp í nefið á sér......
Hissa, ó mæ goooood, þarna eru reykingahrukkurnar hennar mömmu að koma í ljós á mér. Helga er bara náttúrulega lömuð í andlitinu.
Reiðar....ég held ekki að margir yrðu skelkaðir. Helga hreyfir augnbrýrnar.
Hellúúúú......spúkí....how are júúú dúing?
Sexý.....eða...notuðum aukahluti núna, þ.e.a.s. hendurnar. Hefði kannski tekist ef að við hefðum verið með aðeins nettari hendur. Þetta gæti verið reiða myndin í staðin fyrir sexý.
Hann er nú ekki alveg góður hann Steinar. Og sjáiði tunguna maður.....kona.....shit....aubara.... Ég varð aðeins að veita honum smá athygli þar sem að hann sat hinum megin við mig á veitingastaðnum. Hann var orðin hálf örvæntingafullur á svipinn. Thi hi hi.
Tuesday, July 31, 2007
.....2 DAGAR Í BROTTFÖR.....
Stund á milli stríða hjá Helen, mér og Helgu.
Kveðjupartý/matur hjá National staffinu. Þessar elskur bjuggu til þennan líka fína mat. Það er ekki dimmt úti það er bara eitthvað að stillingunni á myndavélinni.
Ég og Helga að Borða eins og svín og þá líður okkur vel.....eða svoleiðis.
Við fórum nokkur út að dansa á laugardaginn....það var voða voða gaman....
Laugardagur.....hann Paul er nú smá klikkaður en á jákvæðan hátt.
og núna er ég bara að fara að búa mig undir það að fara heim. Ég þarf að pakka, pakka og kasta. Úffff verður hugsað til Selmu núna....þarf að kasta fötum. Ansans. Ég verð POTTÞÉTT með yfirvigt.
Svo er það brúðkaup um helgina á Ísó, gay-pride helgin þar á eftir, vinna 13 ágúst, Noregur í lok ágúst. Smá frí til Carinu.
Lovja
P.s. Já Binni það er móttekið ;)