Tuesday, January 23, 2007

......ÚT MEÐ GÆRUNA.......ÞAÐ ER LYKT AF HENNI!!!

Hæ darlings.....

Trallalala, Helga, ég og Jens.....út með gæruna....
Ég verð bara að segja ykkur frá því að ég er að planleggja að Carina komi hingað. OOOOO ég hlakka svo rosalega til ;)
Og núna eru örugglega einhverjir að hugsa og búin að vera að hugsa lengi....´heyrðu voru þær ekki hættar saman´ Jú það er rétt að við reyndum, já við reyndum, en það tókst bara ekki alveg. Og svo getið þið pælt í því hvort að við séum vitlausar og heimskar að halda svona í hvora aðra.....en verði ykkur bara að góðu!!!! Þið græðið ekkert á því.
Ég og Carina erum búnar að gera plan, mjög gott plan, sem að við erum báðar sáttar við. Og hananú nóg um það.
Ég hlakka allaveganna rosalega til að hún komi hingað. Júhú og hei.

Við erum að fara til Maldivene í 5 nætur og 6 daga.....

......SJÁIÐI EYJUNA.....EMBUDU VILLAGE.....

jeiiiiiiii.....förum svo til Colombo á Cinnamon hótel og endum á Beach hótel. Í millitíðinni ætlum við að heimsækja litla og stóra munaðarlausa fíla, já fíla, rétt hjá Kandy gömlu höfuðborginni á ´Ceylon´.

En nú er það stóra spurningin í kvöld ´tekst mér að setja inn myndir´??? Er að reyna vona að það takist vegna þess að þið verðið að sjá myndirnar frá Colombo og þá sérstaklega af henni Helgu þegar hún var að reyna að vera SEXY!!!!!!

.......JEEEE HELGA BABY YOU ARE SOOOOO SEXY.....
Ég læt þá mynd bara á bloggsíðuna hvort sem að ég get látið fleiri myndir eða ekki. Thi hi hi.....

Það var mjög fínt í Colombo en súrt að við gátum ekki fengið að fara að dansa.....ansans. Ég er ennþá pínu svekkt útaf því. En jæja.

Fór á viktina í gær og fékk sjokk. Ég taldi upp um það bil 5 afsakanir á því hvers vegna viktin fór svona langt upp og var byrjuð að sjá fyrir mér svona dagbók eins og Bridget Jones var með. Váááá, mér finnst bara svo gott að borða og að vera með hlaðborð stanslaust er alveg að fara með mig. SHIT.

Aftur nóg um það, best að kíkja á einn Gray´s Anatomy......Váááá hún hélt á sprengju í gær....ætlaði aldrei að geta hætt að horfa á. Shit maður hvað maður er klikkaður.

Hí hí hí hí frá Sri
P.S. Sorry tókst ekki ad láta inn myndirnar.

16 comments:

Anonymous said...

G.Fylkis. Dagný þó, það er allt í lagi að eiga bíl sem fer á 4 sek í hundrað en vigtin........ say no more

Anonymous said...

Allir voru nú bara að spyrja sjálfan sig... og afhverju hættu þessar tvær saman þar sem það er svo augljóst að þær eiga að vera saman!!!!!

Anonymous said...

Hey Dagný það er sko fínt að vera búttuð, bara meira til að klípa í. Flottar myndir hjá þér, Helga nær alveg sexý svipnum. Verður ekkert smá flott h´já ykkur í fríinu. Nú er bara að rífa sig upp á rassinum á morgun, Fótbolti kl 13.30. verður gaman þegar þú kemur að spila með okkur, reyndu að smita Helgu af þessu líka....
Annars úberróleg á vaktinni, Heyrist varla í fjarskiptunum eftir að Gummi fór:-) Hafðu það gott þarna og vertu dugleg að borða
Steinunn E

Anonymous said...

MALDIVENE here we come :) JIPPI!

Hvem er anonymous? :) Tusen takk i alle fall. Veldig koselig sagt. og helt riktig :)

ELSKER DEG DAGNY
Ser deg om 18 dager bare.

Anonymous said...

Ahahahahahaaaaa snilldar svipur á henni!!! Eins og hún sé með heiftarlega magapínu eða eitthvað álíka...
Ji minn eini!

Anonymous said...

ha ha ha ha ha ha ha Selma :)
Sæta sæta! :) LOL

Anonymous said...

Nú er Anna GLÖÐ GLÖÐ GLÖÐ GLÖÐ GLÖÐ GLÖÐ já alveg hrikalega ÁNÆGÐ he he þið eruð bestar saman:)að sjálfsögðu...ég vil nú frekar líkja ykkur við fugla en brennivín he he án hvor annarar eruð þið eins og fugl án vængja hann getur alveg lifað og verið glaður...en hann á alvöru líf ef hann getur flogið öruggur og glaður:O)Svo gott að þið eruð komnar með vængi aftur...jamm ég veit ég er klikk en það má alveg risa knús til ykkar frá mér kveðja anna panna......

Anonymous said...

oh my gossh hvað þetta frí ykkar á eftir að verða ljúft! :D og eyjan bara bjútífúl ;)

*knús&kram* til ykkar sætu

Fam/Fjölsk Borge said...

Gummi-
Jahá......núna er ég að pæla í því hvernig ég eigi að borga þér þetta tilbaka....arg...

Anonymos-
Halló nafnlausa en sæta manneskja ;)

Steinunn-
Jahá...alveg rétt...nóg að klípa í hjá mér. En við megum ekki gleyma því að ég er líka alveg hrrrrriiiiiiiiikalega mössuð.......NOT. Hlakka til að spila fótbolta með ykkur. Jájá við plötum Helgu með ;)

Carina-
JEEEEEEEE......hlakka rosalega til. eru það 17 dagar núna??!! Held það bara.

Selma-
Takk fyrir að minna mig á að ég sé alkahólisti ;) thi hi hi á allt. Nei nei, ég vissi að þér fannst þetta en það er gott að sjá það skrifað niður.

Gígja-
Já er hún ekki rosaleg. Við skulum bara vona að hún setji ekki upp þennan svip þegar þau hittast í dag eða á morgun.

Anna D-
Æi takk Anna D. Rosalega sætt af þér að skrifa þetta. Vona að allt sé í gúddí hjá þér og þínum. Bið að heilsa Ölmu.

Raggý-
Já eins gott að þú fylgist með. Einn af mínum traustustu skoðurum og commenturum...... :)

Lov u all.

Anonymous said...

Hæhæ
ég les alltaf en skrifa ekki alltaf.

Anonymous said...

Blessuð drusl.

Takk fyrir síðast í hittingnum heima hjá Dóru. Það var rosa gaman að hitta á þig áður en þú fórst út. Ætlaði bara að kvitta fyrir innlitið. Alltaf gaman að lesa bloggið frá þér.

Kv. Dís

Anonymous said...

Dagný, ég var að skoða myndirnar, þér hefur líklegast tekist að koma þeim inn að lokum. Geturðu útvegað mér svona framtíðarmyndavél, miðað við heitið á albúminu hjá þér, Noregur Des 2007 þá má sjá að þið ætlið að vera þarna á SRI í desember n.k. Ég vil endilega fá svona vél og sjá hvernig jólin verða hjá mér næst. Ég bara varð.....

kv.
GFylkis

Anonymous said...

sumir eru bara "meant to be"...og þið eruð einmitt þannig :)

Fam/Fjölsk Borge said...

Anna Lára-
Gaman að heyra Anna Lárrrrrra. Vona að allt sé ók á ísó.

Hafdís-
Jei jei jei gaman að heyra í þér litla löggu drusla frá helvíti ;) Æði. Hlakka til að hitta ykkur aftur. Kús.

Selma-
Thi hi hi eins og ég hafi tekið því illa!!!! He he he....

Gummi-
Heyrðu vondi kall í vonda landi þar sem að allir eru vondir við alla!!!??? Bara bögg frá þér......Ég verð víst að lemja þig aftur. Thi hi hi....stendur 2007!!!??? Ansans.

Gulla-
Takk og sömuleiðis sæta massaða kona. Bið að heilsa Kötu ;)

Anonymous said...

Við vorum náttúrlega löngu búin ad fatta ad þid myndið aldree geta haett saman. Flott ad heira ad thað sé plan i gangi. Góda skemmtun í frínu báðar tvaer.
kveðja frá Uppsala liðinu, Lóa

Anonymous said...

thid eru allir svo sætir :) SMASK!