Friday, February 02, 2007

.....KYNFERÐISLEG ÁREITNI.....EÐA HVAÐ......


........Aldrei hefði ég trúað að ég myndi lenda í þessu hérna á Sri Lanka.....Landinu þar sem að ég er inn í skápnum......

Jei jei we rule

Ókei, ég ætti nú að byrja að segja ykkur frá Jaffna ferðinni og svona en ég get bara ekki beðið eftir að segja þessa sögu!! Ég grenjaði af hlátri og verð að deila þessu á meðan þetta er ferskt í minningunni.

Við, ég og Abdel, vorum búin að vera 2 daga í jaffna og vorum á leiðinni heim. Eins og mínir traustu lesendur vita þá verðum við að ferðast með herflugvél til og frá Jaffna. Áður en við förum í flugið erum við grandskoðuð frá toppi til táar og farangurinn okkar grandskoðaður. Maður er nú bara orðinn vanur þessu og tekur þessu bara brosandi. Venjulega er ein hermannakona að tjékka mig inn í litlu herbergi en allt í einu voru the soldier girls orðnar tvær. Ekkert mál hugsaði ég, bara kammó að vera þrjár inn í litla heita herberginu.
Ég kannaðist við aðra þeirra en þessi nýja.....tja hvað á ég að segja, hún kom ansi sterkt inn í þetta litla partý okkar sem að á örugglega eftir að vera í minnum haft þarna á flugvéllinum í Jaffna.

Þessi nýja, sem var ´hraustleg í laginu´eins og ég, nema með miklu stærri brjóst, horfði á mig mjög einkennilega og tja mér fannst eiginlega eins og hún væri að reyna við mig. Já já það eru til lesbíur á Sri Lanka en HALLÓ. Ég lét eins og ekkert væri og hélt kannski bara að ég væri að ímynda mér þetta. En eins og Carina allaveganna veit þá fatta ég ekki að það sé verið að reyna við mig fyrr en ég er byrjuð á föstu með manneskjunni.

zzzzzzzz, þær voru nú ekki alveg svona tilbúnar en jæja

Ég vissi hvað ég átti að gera við mig þegar hún byrjaði að flagga augnhárunum til hægri og vinstri og vagga sér fram og til baka í hermanna pilsinu sínu. Og hin hermannakonan horfði bara á og fannst þetta greinilega gaman. Ég byrjaði að hlægja móðursýkislega og þær hlógu þá bara með mér og byrjuðu svo að leita í farangrinum mínum. Þessi eldri í faginu leitaði í gegnum farangurinn og hin gerði ekkert annað en að fylgjast með mér og henni og hallaði sér MJÖG ákveðin upp að mér og nuddaði og já ég meina nuddaði brjóstunum á sér upp að mér. Ég hló bara geðveikislega mikið af öllu sem að var að gerast og byrjaði að svitna svakalega mikið út af öllum látunum og hitanum þarna inni. Ég sagði þá ´hot in here´ og þá horfði þessi ákveðna á mig og sagði ´yes hot´ og blikkaði mig. ARG..........

Og bara til að gera þetta aðeins skemmtilegra þá stóðu um það bil 60 hermenn og yfirmaður minn fyrir utan þetta litla herbergi sem að það bara hreinlega kom gufa útaf á vissum augnablikum. Þeir skildu ekkert í þessu en ég get lofað ykkur því að þeirra ímyndunarafl var komið á fleygiferð og ekki af ástæðulausu. Það komu hreinlega bara píkuskrækir frá okkur þarna.........en í góðri merkingu.

Allt í einu hallar hermannakonan sér að mér og spyr ´what is your name´? Ég sagði með lágri músarrödd....´Dagný´ mér fannst mér eins og peð við hliðina á henni sjáið þið til. Ég reyndi að halda haus og held að mér hafi tekist það að sumu leyti.

Dagný sagði ég með sterkri bassarödd....einmitt..... þá tók þessi kona pennann minn, hægt, úr brjóstvasanum mínum og ætlaði að skrifa þetta í lófann sinn. Þá sá ég að það stóð ´i love you´ og eitthvað nafn fyrir neðan í lófanum hennar. Ég benti konunni kurteisislega á þessa staðreynd og hún missti sig alveg.......hljóp út úr herberginu, kom inn aftur og hélt þá lófanum út að mér svo að ég sá ´i love you´og svo hélt hún fyrir nafnið. Og ég hugsaði...ætli hún sé að reyna við mig....thi hi hi hi hi....vitið þið að ég hló svo mikið að mér var illt í maganum á eftir. Og svo kom áframhaldið.....hún kom þétt upp að mér og lét pennann mjakast niður í brjóstvasan hjá mér.....mjjjöööööög hægt og hún stóð ca hálfan cm frá mér. Við vorum þarna allar þrjár, mjög sveittar, heitar og .....hi hi hi þetta er orðin einhver klámsaga hjá mér. Við komum allaveganna útúr herberginu, allar saman, glaðar , sveittar og hlægjandi, bara til að sjá 20 menn standa alveg uppáþrengdir upp að dyrunum inn að herberginu. Í alvöru.....common.....ég á eftir að vera einhver klámstjarna hjá þessum gaurum í nokkra daga ásamt tveimur öðrum. Vááá, lífsreynsla dauðans. Hvar væri maður eiginlega ef að maður upplifði ekki þessar ógleymilegu stundir. Ég bara spyr?
Tja ef að hún hefði stoppað mig þá hefði ég verið kærð fyrir kynferðislega áreitini

Það er allaveganna pottþétt að við erum sko allstaðar og gefum lífinu hjá hvoru öðru fallegan regnbogalit öðru hverju.

Shit hvað ég er búin að skrifa mikið. Og bara um eitt sem að gerðist. Shit shit.

Ég nenni ekki að lesa þetta yfir svo að ef að einhver ritskoðar þetta (þá meina ég selma systa) þá verður þú lamin.

Og Carina.......þú hefðir hlegið ennþá meira en ég...he he he.....9 dagar þangað þú kemur. Ó mæ gooooooood hvað ég hlakka til.

Sakna ykkar og hugsa mikið til ykkar.
Sexý.... i dont think sooooo....

P.s. þær vildu því miður ekki leyfa mér að taka mynd af þeim. Og niðurstaðan er sú að ég held ég kæri þær bara ekki. Held ekki. Thi hi hi.....


13 comments:

Anonymous said...

Ertu alveg viss um að þetta hafi þá verið kona??? :) Híhí....
Voru þær nokkuð með falda myndavél?? Skal láta þig vita ef ég sé þetta atriði ykkar einhvers staðar á netinu. Híhí....

Anonymous said...

Du er så vakker vet du Dagny, at det er ikke så rart jenter prøver seg på deg:)
Bare vent til jeg kommer, da skal jeg banke henne.... He he he. Eller har hun pistol? Da tør jeg ikke. He he he.

Anonymous said...

HEHEHEHEHEHEHEHHEHE, þú ert ein af þeim fyndnustu pennum, kræst.....
Sit hérna við skrifborð mitt í vinnunni og geri mig að algjöru fífli þar sem ég hlæ og hlæ og enginn skilur neitt í neinu!!!!
Takk fyrir að lífga upp Föstudaginn hjá mér.

Togga.

Anonymous said...

Þessu hefði ég nú aldrei trúað.....að þú færir hálfvegis hjá þér. Hefði viljað vera þarna fyrir utan og sjá og heyra viðbrögð þeirra sem biðu þín :)

Kv.
Bylgja

Anonymous said...

þú ert nottla bara flottust!! :D
Góða helgi sæta í Sri

;)

Anonymous said...

Hann Jens á langt í land með að toppa þetta en þetta er eitthvað sem okkur dreymir um. Annars er það svo að hér eru bara svona litlar dökkhærðar stelpur, svona eins og Skagabrosið, með risabyssur og maður verður bara hræddur. G.Fylkis

Anonymous said...

Hann Jens á langt í land með að toppa þetta en þetta er eitthvað sem okkur dreymir um. Annars er það svo að hér eru bara svona litlar dökkhærðar stelpur, svona eins og Skagabrosið, með risabyssur og maður verður bara hræddur. G.Fylkis

Anonymous said...

Þú ert snillingur - hafðu það áfram gott og farðu vel með þig

kær kv alma selfoss :)

Anonymous said...

Hæ snilli

Gestur var að lesa þetta fyrir mig áðan og shit hvað þetta er fyndið!

Sjáumst fljótlega, vona að þið séuð farin að sakna mín :)

Kveðja frá Amsterdam, Helga

Anonymous said...

ps ... varð bara að kommenta aftur og segja hvað mér fannst þetta falleg setning hjá þér ... og svo sönn :)

"Það er allaveganna pottþétt að við erum sko allstaðar og gefum lífinu hjá hvoru öðru fallegan regnbogalit öðru hverju"

Fam/Fjölsk Borge said...

Inga-
Ég held ég sé bara sammála þér.....þetta var bara eins og djók. Falin myndavél....hmmmmmmmm....

Carina-
Ja akkurat veldig vakker ja......NOT. 7 dager til du kommer...oooooo jeg gleder meg.

Togga-
He he he, ekkert smá hrós frá þér sem að ert nú ekki akkúrat leiðinleg ;) Takk elskan.

Bylgja-
Jú Bylgja ég get sko farið hjá mér. Og þarna held ég bara svei mér þá að ég hafi til og með roðnað á rassgatinu...he he he...

Raggy-
ÆI takk Raggy. Já er ég ekki skáldleg ;) Og takk fyrir msn spjallið.

Gummi-
JESSSSS ég vinn Jens....JESZSSSS ÆÐI. Takk fyrir það Gummi.

Helga-
Ég vona að Gestur hafi hlegið líka.....að þú hafir ekki verið sú eina sem að rakst útúr þér rokur..... bið að heilsa og sjáumst á miðvikudaginn.

Alma-
Og takk fyrir það Alma á Selfossi ;) Vona allt gangi vel í Stjórnmálunum.

P.s. ég er að hugsa um að hafa með mér dildó upp til Jaffna næst og tjékka á því hvað þær segji við því ;)

Anonymous said...

Hæ sæta systa en hvað er gott að heyra að það sé einungis verið að reyna að skjóta þig með ástarörvum þarna í utlandinu góða. keep op the good work og blikkaðu áfram thihi carina sér síðan um að eyða öllum misskilningi og hún þarf ekki byssu hún drepur með augnaráðinu einu saman.
kv Marín

Gunnan said...

ég er búin að hlæja og hlæja, mér finnst ógó fyndið að einhver skildi geta gengið fram af þér og nánast gert þig kjafstopp, finnst eins og það gerist ekki oft. múhhhhaaahahah

Dagný það var brjálað stuð í partýinu hjá Hjálmari um helgina, það er eins gott að þú verið komin á klakann næst þegar það verður partý hjá vaktinni.

Hvenær ertu væntanleg heim annars?

kv. Guðrún