Sunday, June 10, 2007

(Teksti frá 07.06, myndir frá ´Ingugæsagleði´ 09.06)

Inga Hrönn/jaimaikaman á röltinu í bænum

Hæ hæ
Hallóóó til ykkar allra……..
Ég er bráðum að leggja af stað í 2 vikna frí. Ég veit ekki alveg hvernig ég get útskýrt hversu mikið mér hlakkar til að koma til ykkar á Íslandi. Þetta verður æði. Talaði við Hjöbba og mömmu og var að spyrja um frændur mína tvo.......arg þeir eru víst orðnir svo stórir að ég á örugglega ekki eftir að þekkja þá aftur. Ég held ekki að sú staðreynd að þeir séu tveir og að þeir búi á Helgalandi 1b hjálpi neitt til við að finna þá. Eða kannski........

Og þá verður það brúðkaup og læti þegar ég kem heim. Jiiiii hvað ég hlakka til...aftur og aftur og aftur.......Inga og Raggý....da datara, da datara, datataraatrara......getið þið lesið að ég er að skrifa brúðarmarsinn?? Thi hi hi....
....Við í gæsinni í ´litlu Eldingunni´ (takk Elding)....
Og svo er það nýja vinnan. Málið er að ég er orðin Personal Manager (PM) eins og það heitir víst hérna. Hvað ég er að gera...jú allt eiginlega og svo er ég ennþá að gera smá ADC vinnu. Nóg að gera. Ég nenni nú ekki að fara út í nein smáatriði um þetta (þetta máltak lærði frá Arthur T, Jens, Aðalbjörn, Helga og co., þið vitið hvað ég meina) en mikið að gera. Ji ji ji og ji, ég er nú bara alveg að fara yfirum hérna....nei nei alls ekki. Ég er að læra mikið nýtt og gera hluti sem að ég hef ekki þurft að hugsa mikið um áður. Það eina sem að er dálítið erfitt fyrir mig er að vera alvarleg!!!!! Ég á að vera virðuleg og svoleiðis og eins og þið vitið þá er mér það KOLÓMUGLEGT! En fólk sættir sig nú alveg við það, ´heldur´bara að ég sé klikkuð. Sem og ég er .......

Annars er ástandið, eins og venjulega, bara að versna því miður. Ég veit ekki hvað ég á að segja um þetta. Ég veit að þið skiljið ekki alveg hvað ég er að tala um þegar ég er að tala um ástandið hérna en þetta er mjög slæmt. Ég verð víst bara að segja þetta þegar ég hitti ykkur heima en þá held ég að þið verðið fljótt leið á mér.....svo....ég verð víst bara að byrgja þetta innímér og þegja....thi hi hi hi hi....ónei....ég er ekki að hlægja að ástandinu....bara að mér og því sem að kemur upp úr mér. Ó mæ gooooood.

Hlakka til að sjá ykkur bráðum elskurnar mínar.
'''''''Hún er nú ekki alveg heil kellingin'''''
P.S. ég er búin að panta tíma hjá Lilju í klippingu þar sem að hárið mitt er farið að vera fyrir mér.....er ekki búin að klippa mig síðan ég var seinast á Íslandi (en p.s.p.s. ég hef rakað mig, thi hi hi)

Og eins og þið sjáið þá ´gæsuðum´ við Ingu með pompi og prakt. Þið getið lesið hennar sögu (og Raggýar) á www.minspeki.blogspot.com Endilega að kíkja.

Ég og Hanna viljum þakka Lögreglunni í Rvk, Aðalbirni og Eldingu (Evu) fyrir hjálpina.

Og Inga....þú varst ógeðslega flott og skemmtileg þennan dag. Takk fyrir það.

7 comments:

Anonymous said...

Takk elskan. Einsog ég var flott í gær þá er ég ekki mjög fín í dag. Hehe....þunn og ógeðsleg.
Takk fyrir frábærann dag. Svo er það bara næsta helgi....koma svo!!!

Anonymous said...

Var mig að dreyma eða hef ég lesið þetta blogg áður, allavega hluta þess. G.Fylkis í sólinni í DK

Anonymous said...

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag. Til hamingju með daginn.
Maja Pálsd.

Anonymous said...

Til hamingju með afmælisdaginn elsku "stóra systir"! Eigðu góðan og skemmtilegan dag.

Anonymous said...

TIL HAMINGJU með afmælið sæta!! :)Hlökkum til að fá ykkur stelpurnar í kvöld. Það verður skohh dinner að hætti hússins :D *knús&kram*

Anonymous said...

HÚN Á AFMÆLI Í DAG, HÚN Á AFMÆLI HÚN DAAAAGGGNÝÝ LALALALALALALLAALALALLALAALALALALALALALALALLALALALALALAALALALALLAALALALALALALALALALLAALALALLALALAALLALALALALAALLALAALAL

Togga.

Anonymous said...

Tilhamingju med daginn elskan hafdu tad endalaust gott a islandi knus og koss fra okkur i Thailandi geggjad gaman hja okkur he he og bros bros.....