Búin að redda mér bíl á Íslandi í gegnum sætu mömmu mína sem að er með einhvern 300 hestafla sportbíl aflögu...Hí hí hí...hún er nú ekki alveg venjuleg hún mamman mín. En ég hef lúmskan grun að hann bílaóði bróðir minn hann Sævar hafi haft eitthvað með þetta allt saman að gera.
Hvað ætla ég að gera í Noregi;
Ísland;
Hitta mömmu og alla fjölskylduna, vini, Maggy og Eva,ætla að gista hjá þeim í tvær nætur(allaveganna), já vinir, löggur, World class(shake þar, nammi namm, og það verður það eina holla sem að ég borða meðan ég er á Íslandi). Ætla að gera eins og Inga vinkona með meiru.....ó ó ó, ég verð að skrifa Raggý á eftir Ingu.....vá þær eru sko par í mínum huga ;) já hvað ætla ég að gera eins og Inga, jú hafa það sem takmark um jólin að þyngjast um 5 kg(það verður sko ekki erfitt) Og þá er svo auðvelt að gera áramótaheit, losa mig við 5 kíló sem að ég fékk um jólin. Snapp snapp búið mál ekkert vesen. Ó jí, ég kemst ekkert áfram í þessu hvað ég ætla að gera á Íslandi. Langar að versla mér rosa mikið en veit eiginglega ekki hvað ég ætti að versla þar sem að ég þarfnast einskis hérna í Sri nema kannski fjölskyldu og vini og ég get víst ekki tekið þau með mér hingað. Úfffff, svindl. Og svo eru jólin, nammi namm. Hamborgarhryggur, hangikjöt, kökur, át og vellíðan. Eru 12 dagar nóg....ég held heldur ekki.
Ég varð bara að setja þessa mynd inn, ég vill dansa við Evu og Doddi má gjarnan spila takk ;)
Þetta verður eitthvað rosa kapphlaup að vera í heimsókn en ég vill bara hafa það svoleiðis vegna þess að ég hlakka svo rosalega til að hitta ykkur sem að mér þykir vænt um og hef saknað að vera í félagsskap með. Alveg getur maður orðið væmin þegar maður er svona í útlöndunum og fattar hvað það er mikilvægt með fjölskyldu og vini. Jæja ég hef nú verið þekkt fyrir það að vera smá væmin öðru hverju. Ég er með verri galla en það, það er alveg á hreinu. Ekki það að ég ætli að hreykja mér af göllunum mínum. Úffffff, ég á nú einhverja jákvæða líka........(jákvæð Dagný, jákvæð).......ooooooo, ég er að reyna en það er alltaf svo erfitt að sjá það jákvæða við mann sjálfan en rosalega auðvelt að sjá það neikvæða.
HALLÓÓÓÓÓÓÓÓ, ÚFFFFFFF, þegar ég byrja á einhverju svona þá verðið þið að stoppa mig. Pælingar dauðans, verið ein of lengi.(ekki hugsa of mikið Dagný, ekki hugsa of mikið)
Thi hi hi eins og þið sjáið í gegnum lesturinn hef ég gleymt að taka gulu pillurnar og hef tekið alltof mikið af þeim rauðu!!!!!!
Nóg af þessu, reyni að skrifa eitthvað á morgun líka áður en ég fer, gleymi ykkur ekki elskurnar sem að nennið að lesa þetta rugl hjá mér.
Lov u girls and boys.(mostly girls i think......or.....)
P.s. ég verð nú aðeins að tjá mig um málið sem að hefur verið í fjölmiðlum á Íslandi um lögregluna. Við lögreglumenn/konur höfum það ekki sem markmið að meiða fólk í vinnunni, hvað þá drepa það. Það sem að ég hef kynnst í lögreglunni í RVK er að við erum yfirleitt of þolinmóð þó að það komi upp einstaka atvik sem að við erum ekki stolt af. En að halda því fram að við höfum drepið einhvern. HALLLLLLLÓÓÓÓÓ. Ég held að ég geti haldið því fram ófeimin að íslenska lögreglan er ein sú kurteisasta í heiminum í dag.
Og hananú. Takk fyrir það.
6 comments:
Góða heimferð.....
Steinunn, hvað ert þú að ryðjast fram fyrir mig. G.Fylkis
Ja det blir tett program når du kommer på besøk, men vi skal nok få litt tid til å slappe av sammen også. Det er viktig at du får litt fri og ro vet du.Nå som du er vant til å høre bomber mens du sover, kommer du vel ikke til å høre pusten min lenger, og slipper ørepropper. he he he :)
Gleder meg sinnsykt mye til å være sammen med deg :)
Elsker deg
Hæ.. úú.. hlökkum til að fá þig!!! Ætlum að kaupa svefnsófa.. svo að þú getir krassað hérna hjá okkur! Úllala svo tökum við nú dans saman líka..
Hey: fór áðan og ætlaði að leysa út ábyrgðabréfið þitt í pósti.. en NEI það var ekki hægt þar sem þetta er ÁBYRGÐARbréf og þá ber pósturinn ábyrgð á því og að það komist í réttar hendur (sem er skiljanlegt svosem). En þetta var bara frekar fyndið vegna þess að gellan (hún var gömul, en gella fyrir því) í pósthúsinu sagði: "Láttu bara viðkomandi senda þér umboð fyrir öllu svona og komdu svo aftur".. og ég: "Humm.. viðkomandi er friðagæsluliði í Sri Lanka, þannig að umboðið verður líklegast mjög lengi á leiðinni, held bara að viðkomandi verði kominn undan umboðinu.. ".
Well... nú er ég byrjuð.. CIAO
Lov ya
Hæ skvís...vildi bara segja ofsa góða ferð til Noregs og njóttu þess að vera með Carinu sætu þar og hitta allt þetta fólk sem þú taldir upp :)
Aldrei að vita nema maður hitti þig á íslandi og taki einn dans eða svo með þér og Evu :)
Knús frá Beggu
Steinunn-
Takk elskan og við sjáumst ;) og þú vannst Gumma....
Gummi-
Og þú tapaðir Gummi.....en í heildina ertu bestur!!
Carina-
Og jeg gleder meg uendilig mye til á se deg ;) Tralla lala klikk klikk....P.s. jeg har likevel med orepropper.
Selma-
Halloooo fucking big whitest drusl in the whole fucking universe....ó hvað við erum nú klikkaðar Selma sys and i´m loving it.
Eva og Maggý-
Svefnsófi ;) Já takk. Næturnar verða bara fleiri og fleiri....ég held að þið losnið ekki við mig. Eða jú nokkrar nætur hjá mömmu elskunni ;)
Begga-
Já hvernig væri það ;) Alltaf gaman að dansa við þig líka eins og Evu. Þið eruð auðvitað bara flottastar á dansgólfinu ;) Kús.
Post a Comment